Fótbolti - Andri skrifar undir

25.júl.2014  15:15
Eyjamaðurinn Andri Ólafsson skrifaði í dag undir samning við Knattspyrnudeild ÍBV sem gildir út tímabilið. Fyrir tímabilið gekk Andri til liðs við Grindvíkinga en komst að samkomulagi við félagið um lausn samnings fyrir stuttu.
Ánægja er innan knattspyrnudeildarinnar með komu Andra aftur til ÍBV en hann er annar eyjamaðurinn á stuttum tíma sem bætist í hópinn eftir að Þórarinn Ingi Valdimarsson ákvað að koma "heim" og hjálpa liðinu í komandi baráttu.