Fótbolti - Framkvæmdadagur knattspyrnudeildar ÍBV

28.apr.2014  21:40
Næstkomandi fimmtudag, 1. maí, fer fram framkvæmdadagur Knattspyrnudeildar ÍBV. Verkefni dagsins er að gera Hásteinsvöllinn okkar tilbúinn fyrir komandi sumar enda Pepsí deildin handan við hornið.
Knattpyrnuráð deildarinnar hvetur stuðningsmenn ÍBV til að fjölmenna "á völlinn" en eins og orðatiltækið segir "margar hendur vinna létt verk" og hjálpa okkur í að gera Hásteinsvöll glæsilegasta völl landsins.

Dagurinn byrjar kl:11 og er áætlað að verkinu verði lokið um kl:16. 

Fh. knattspyrnuráðs,

Hjálmar Jónsson
Framkvæmdastjóri knattspyrnudeildar ÍBV