Fótbolti - Kim og Nadia skrifa undir samning.

25.mar.2014  15:57
Í gær skrifuðu þær Kim Dolstra og Nadia Lawrance undir samning við félagið.  Kim er nýr leikmaður sem kemur frá Hollandi og leikur sem varnarmaður.  Kim hefur undanfarið verið fastamaður í 18 manna landsliðshóp Hollands.  Nadia sem kemur frá Wales lék á miðjunni í fyrra með ÍBV og er því að hefja sitt annað leiktímabil með liðinu.  Nadia hefur líkt og Kim verið fastamaður í 18 manna landsliðshóp sinnar þjóðar.
 
ÍBV bíður bæði Kim og Nadiu velkomnar til félagsins.