Fótbolti - Jonni með U-19.

26.feb.2014  16:04
Kristinn Rúnar Jónsson, landsliðsþjálfari U19 karla, hefur valið hópinn sem mætir Svíum í tveimur vináttulandsleikjum, 4. og 6. mars næstkomandi. Fótbolti.net og SportTv.is sýna leikina í beinni útsendingu.
 
 Kristinn velur 20 leikmenn í hópinn fyrir þessa leiki sem fara fram í Kórnum og Egilshöll. Rúnar Alex Rúnarsson, Orri Sigurður Ómarsson og Hjörtur Hermannsson eru ekki með þar sem þeir eru með U21 árs landsliðinu í Kasakstan á sama tíma.

Markmenn: 
Fannar Hafsteinsson, KA 
Sveinn Sigurður Jóhannesson, Stjarnan 

Aðrir leikmenn: 
Oliver Sigurjónsson, AGF 
Davíð Kristján Ólafsson, Breiðablik 
Stefán Þór Pálsson, Breiðablik 
Emil Ásmundsson, Brighton 
Gunnlaugur Hlynur Birgisson, Club Brugge 
Kristján Flóki Finnbogason, FC Köbenhavn 
Böðvar Böðvarsson, FH 
Aron Bjarnason, Fram 
Ósvald Jarl Traustason, Fram 
Daníel Leó Grétarsson, Grindavík 
Jón Ingason, ÍBV 
Ævar Ingi Jóhannesson, KA 
Elías Már Ómarsson, Keflavík 
Adam Örn Arnarson, NEC Nijmegen 
Daði Bergsson, NEC Nijmegen 
Samúel Kári Friðjónsson, Reading 
Aron Rúnarsson Heiðdal, Stjarnan 
Heiðar Ægisson, Stjarnan

ÍBV óskar Jonna innilega til hamingju með þennan árangur.