Fótbolti - Devon valinn í lokahóp U-17.

20.feb.2014  18:07
Í dag tilkynnti Þorlákur Árnason val sitt á 18 manna landsliðshópi Íslands í knattspyrnu U-17 fyrir tvo vináttulandsleiki gegn Noregi sem fram fara dagana 2.og 4.mars.  Þorlákur valdi Devon Má Griffin frá ÍBV í þennan hóp en þrir af þessum 18 drengjum eru nú þegar farnir í atvinnumennsku.  Devon Már hefur verið fastamaður í æfingahópnum undanfarið og uppsker nú ríkulega enda samkeppnin gríðarleg.
 
ÍBV óskar Devoni Má innilega til hamingju með þennan árangur.