Fótbolti - ÍBV skrifar undir samning við sóknarmann

10.feb.2014  15:57
ÍBV skrifaði í dag undir 1 árs samning við Jonathan Glenn. Jonathan er 26 ára gamall framherji frá Trinidad &Tobago og á að baki landsleiki bæði með U17 og U-20 ára landsliði Trinidad &Tobago. 
Jonathan lék með St. Leo háskólanum í Florida og er 5. markahæsti leikmaður í sögu skólans þar sem hann skoraði 41 mark í 57 leikjum og lagði upp 16 mörk. Eftir útskrift hefur Jonathan leikið með Vermont Voltage í PDL deildinni og Jacksonville United í NPSL deildinni í Bandaríkjunum.
 
ÍBV bauð Jonathan samning eftir að hann æfði og lék með félaginu gegn Haukum í Fótbolti.net mótinu og í vináttuleik gegn Val fyrir skömmu síðan. ÍBV býður Jonathan velkominn til félagsins og væntir mikils af honum á komandi keppnistímabili.