Fótbolti - Sabrína æfir með U-19.

30.jan.2014  15:02
Ólafur Þór Guðbjörnsson þjálfari U-19 ára landsliðs kvenna í knattspyrnu valdi í dag 26 manna úrtakshóp sem æfir dagana 8.og 9.febrúar.  Ólafur valdi Sabrínu Lind Adolfsdóttur í hópinn en æfingarnar fara fram í Reykjavík og eru liður í undirbúningi liðsins fyrir þátttöku í milliriðli EM sem fram fer í Króatíu í apríl.
 
ÍBV óskar Sabrínu Lind innilega til hamingju með þennan árangur.