Fótbolti - Víðir Þorvarðarson framlengir við ÍBV

28.jan.2014  09:59
ÍBV heldur áfram að tryggja þjónustu heimamanna en Víðir Þorvarðarson endursamdi við ÍBV nú í morgun. Nýji samningurinn er til tveggja ára eða út árið 2015.
Víðir sem er uppalinn eyjamaður kom aftur til ÍBV í byrjun árs 2012 úr Stjörnunni eftir tveggja ára veru í Garðabænum. Þrátt fyrir að vera aðeins 21 árs þá á hann að baki 68 leiki í meistaraflokki, bæði í deild og bikar. Árið 2012 spilaði Víðir 21 leik með ÍBV og 2013 spilaði hann 24 leiki. Víðir hefur því verið fastamaður í öflugu liði ÍBV undanfarin ár.