Fótbolti - Sabrína æfir með U-19.

20.jan.2014  10:44
Ólafur Þór Guðbjörnsson þjálfari U-19 ára landsliðs Íslands í knattspyrnu valdi í morgun Sabrínu Lind Adolfsdóttur til æfinga með U-19 ára landsliðinu.
Að þessu sinni eru 20 leikmenn valdir og fara æfingarnar fram í Reykjavík um næstu helgi.
 
ÍBV óskar Sabrínu innilega til hamingju með þennan árangur.