Fótbolti - Getraunir aftur af stað eftir jólafrí!

16.jan.2014  14:13
Hópaleikur ÍBV í Getraunum hefst næstkomandi laugardag 18 jan !!! 

Leiknar verða 14 umferðir og klárast það helgina fyrir páska! Tippað er á tvær raðir með 6 tvítryggingum og tvær lélegustu detta út. 
Hvetjum alla stuðningsmenn til að taka þátt og styðja við klúbbinn um leið ! Hópagjaldið áfram það sama og hefur verið um ómunatíð eða 6000 krónur.

Á hverjum laugardegi mætir fjöldi manns í Týsheimilið til að tippa og styðja í leiðinni við bakið á knattspyrnudeild ÍBV og er einnig kjörið að mæta og segja sýna skoðun á boltanum því að eftir því sem ég kemst næst eru sérfræðingarnir fleiri en búa í bænum enda hjartansmál okkar allra! 

Mikið fjör myndast oft og oftar en ekki er boðið uppá súpu eða annað góðgæti. Ef þú vilt vera með í hópaleiknum þá er það minnsta mál. Hægt er að hafa samband í síma 481-2861 eða senda tölvupóst á 1x2@ibv.is. 

Opnunartíminn er á laugardögum á milli 11 og 14. Síðan þegar klukkunni er breytt á Bretlands-eyjum er opið til 13.
Getraunanúmer ÍBV er 900. 

Virðingarfyllst fyrir hönd knattspyrnuráðs Hjálmar Jónsson