Fótbolti - Elísa farin í atvinnumennsku.

14.jan.2014  08:23

Elísa Viðarsdóttir sem hefur verið einn albesti leikmaður ÍBV undanfarin ár ásamt því að vera fyrirliði liðsins er farin til Svíþjóðar sem atvinnumaður í knattspyrnu.  Elísa er gengin til liðs við Kristianstad sem leikur í úrvalsdeildinni þar.  Margrét Lára systir Elísu hefur leikið í nokkur ár hjá þeim þó með hléum meðan hún lék í Þýskalandi en þangað komast eingöngu þeir bestu.  Þetta er gífurlega mikill heiður fyrir Elísu og í leiðinni fyrir ÍBV að eignast atvinnumann.  Í samtali við íbvsport.is sagði Elísa þetta vera draumi líkast þ.e að geta lifað af því að leika knattspyrnu og geta stundað nám sitt af kappi í leiðinni.  Elísa vill þakka öllum sínum samstafsmönnum og stuðningsmönnum í gegnum tíðina kærlega fyrir samstarfið og vonast til að spila aftur með ÍBV í framtíinni.

Stjórn knattspyrnudeildar kvenna þakkar Elísu innilega sitt framlag til félagsins en Elísa á stóran þátt í því að koma liðinu á þann stað sem það er á í dag og í leiðinni óskar deildin henni velfarnaðar í nýju liði.