Fótbolti - Fréttatilkynning frá knattspyrnudeild kvenna og Elísu Viðarsdóttur.

02.jan.2014  14:40

Fréttatilkynning frá ÍBV og Elísu Viðarsdóttur.

Eftir langt, gott og gæfuríkt samstarf hafa ÍBV og Elísa ákveðið að leiðir skilji í bili og mun Elísa leika með nýju félagi á komandi leiktímabili.  Elísa kveður félagið með söknuði enda verið einn besti leikmaður liðsins undanfarin ár ásamt því að vera fyrirliði.  Félagið þakkar Elísu innilega framlag sitt og hlakkar til að sjá hana aftur í búningi ÍBV í framtíðinni.  Þá vill Elísa þakka öllum sínum liðsfélögum, stjórn og stuðningsmönnum fyrir þennan frábæra tíma sem hún hefur átt hjá ÍBV.  Elísa tók þátt í endurreisn kvennaknattspyrnu hjá félaginu og skilur við liðið eftir að hafa tekið þátt í að koma því á meðal þeirra bestu.