Fótbolti - Nokkrir frá ÍBV á æfingar hjá KSÍ.

20.des.2013  13:16
Í dag var gefin út listi yfir þá leikmenn sem eiga að æfa með karlalandsliðunum í knattspyrnu í byrjun janúar.
Eyjólfur Sverrison þjálfari U-21 árs landsliðsins valdi 3 leikmenn ÍBV, Brynjar Gauti Guðjónsson, Guðjón Orri Sigurjónsson og Gunnar Þorsteinsson voru allir valdir.
Kristinn R. Jónsson þjálfari U-19 ára landsliðsins valdi þá Jón Ingason og Atla Fannar Jónsson.
Gunnar Gylfason þjálfari U-19 ára landsliðsins árgangs 1996 valdi Sigurð Grétar Benónýsson.
Eyjamaðurinn Þorlákur Árnason valdi þá Devon Má Griffin og Breka Ómarsson í sinn hóp.
Æfingarnar fara fram á Reykjavíkursvæðinu dagana 3.-5.janúar.
 
ÍBV óskar þessum efnilegu drengjum innilega til hamingju með þennan árangur.