Fótbolti - Ragnar Leósson og Gunnar Már í Fjölni

31.okt.2013  15:38
 Í dag gengu þeir Ragnar Leósson og Gunnar Már Guðmundsson yfir í Fjölni.
 
Gunnar Már kom til ÍBV frá FH í upphafi árs 2012. Hann meiddist fyrir tímabilið 2012 og náði sér aldrei almennilega það árið. Gunnar var hinsvegar ansi öflugur í liði Eyjamanna í ár og var meðal annars markahæsti leikmaður liðsins.
 
Ragnar Leósson kom til ÍBV frá ÍA í lok árs 2011. Á síðari hluta þessa keppnistímabilsins 2013 var hann lánaður til Fjölnis og átti stóran þátt í að koma þeim aftur upp í úrvalsdeild.
 
Við þökkum þeim kærlega fyrir frábæran tíma í Eyjum og óskum þeim alls hins besta í framtíðinni.