Fótbolti - Getraunir hefjast um næstu helgi!

30.sep.2013  11:14
 Getraunirnar hefjast á nýjan leik 5. október næstkomandi. Hópagjaldið er 6.000 kr eða 3.000 kr á mann ef tveir eru í hóp. Því fleiri sem við erum því skemmtilegra er þetta þannig það um að gera að rífa félagana með sér og búa til keppni.

Við byrjum stundvíslega klukkan 11:00, laugardaginn 5. október.
 Það er einnig hægt að skila inn sínum seðli á e-maili: 1x2@ibv.is eða í síma 4812861.