Fótbolti - Vesna og Shaneka gera nýjan samning.

16.sep.2013  10:31
Í morgun skrifuðu þær Shaneka Gordon og Vesna Smiljkovic undir nýjan samning við ÍBV.  Þetta eru góðar fréttir fyrir félagið en þær stöllur hafa verið lykilmenn í liðinu undanfarin ár.  Vesna mun því leika sitt 4.leiktímabil og Shaneka sitt 3.  Það er greinilegt að þeim líður vel á eyjunni fögru. 
Þá lýstu þær Ana Maria Escribano og Nadia Lawrence yfir miklum áhuga að leika áfram með liðinu.
Kristín Erna Sigurlásdóttir er óðum að ná sér af erfiðum meiðslum sem og Svava Tara Ólafsdóttir en hún er þegar búin að leika eitthvað með 2.flokki.
Sigríður Lára Garðarsdóttir er búin í aðgerð og er bati hennar framar öllum vonum.
Leikmenn liðsins fara nú í langþráða pásu þar til undirbúningur fyrir næsta tímabil hefst þann 1.nóvember.  Liðið tekur þá þátt í Faxaflóamótinu sem er undanfari Lengjubikarsins sem hefst í mars.
 
ÁFRAM ÍBV