Fótbolti - Breytingar á leikjum mfl ÍBV

03.sep.2013  12:10
 Nokkuð viðamiklar breytingar  hafa verið gerðar á leikjum í Pepsi-deild karla í fótbolta. Ástæða fyrir breytingum eru A landsleikir, U21 landsleikir og frestaðir leikir. Þrem leikjum ÍBV hefur verið hliðrað til en það eru næstu 3 leikir liðsins. Ýttu á meira til að sjá nánar nýjar dag- og tímasetningar.
 Leikir ÍBV sem breytt hefur verið eru:
 
Fram – ÍBV
Var: Fimmtudaginn 12. september kl. 17.30 á Laugardalsvelli
Verður: Föstudaginn 13. september kl. 18.00 á Laugardalsvelli
 
ÍBV - Stjarnan
Var: Sunnudaginn 15. september kl. 17.00 á Hásteinsvelli
Verður: Mánudaginn 16. september kl. 17.15 á Hásteinsvelli
 
ÍBV - Valur
Var: Sunnudaginn 1. september kl. 17.00 á Hásteinsvelli
Verður: Fimmtudaginn 19. september kl. 17.00 á Hásteinsvelli
 
Lokaumferð Pepsi-deildar karla færist frá laugardeginum 28. september til sunnudagsins 29. 
september.