Fótbolti - Hafsteinn Gísli og Sigurður Grétar skrifa undir!

03.mar.2013  14:01
 Á föstudaginn skrifuðu þeir Sigurður Grétar Benónýsson og Hafsteinn Gísli Valdimarsson undir samninga við ÍBV. Sigurður Grétar skrifaði undir til tveggja ára en Hafsteinn Gísli til þriggja ára. Báðir hafa þeir gengið upp flokka félagsins en eru sem stendur í 2. flokk. Strákarnir eru fæddir 1996 og eru því á 17 aldursári. Mikill efniviður hér á ferð sem gaman verður að fylgjast með í framtíðinni.