Fótbolti - Jonni í lokahóp U-19.

11.feb.2013  15:04
Jón Ingason var í dag valinn í lokahóp U-19 ára landsliðs Íslands í knattspyrnu.  Liðið leikur í næstu viku tvo vináttulandsleiki gegn Dönum ytra.  Þetta er frábær árangur hjá Jonna þar sem 9 af 18 leikmönnum liðsins eru atvinnumenn.  Jonni hefur í vetur átt fast sæti í meistaraflokki félagsins og leikið mjög vel.
Þjálfari liðsins er Kristinn R. Jónsson fyrrum þjálfari ÍBV.
 
ÍBV óskar Jonna innilega til hamingju með þennan árangur.