Fótbolti - Svava Tara og Sísí Lára á æfingar hjá U-19.

04.feb.2013  14:21
Þær stöllur Sigríður Lára Garðarsdóttir og Svava Tara Ólafsdóttir voru í morgun valdar til æfinga með U-19 ára landsliði Íslands í knattspyrnu.  Þær hafa iðulega verið í hópnum sem undirbýr sig fyrir keppni í milliriðli Evrópumóts landsliða sem fram fer í mars.
Þjálfarar liðsins eru Ólafur Guðbjörnsson og Úlfar Hinriksson.
 
ÍBV óskar þessum efnilegu stúlkum innilega til hamingju með þennan árangur.