Fótbolti - Svava Tara og Sísí á æfingar hjá U-19.

22.jan.2013  08:34
Svava Tara Ólafsdóttir og Sigríður Lára Garðarsdóttir voru báðar valdar til æfinga með U-19 ára landsliði Íslands í knattspyrnu.  Liðið æfir á Reykjavíkursvæðinu um næstu helgi.  Þessar æfingar eru liður í undirbúningi liðsins fyrir milliriðil Evrópumóts landsliða sem leikinn verður í Portúgal í mars.
Þjálfarar liðsins eru Ólafur Guðbjörnsson og Úlfar Hinriksson.
 
ÍBV óskar þessum efnilegu stúlkum innilega til hamningju með þennan árangur.