Fótbolti - Ragnar Pétursson til ÍBV

26.nóv.2012  15:53
 Ragnar Pétursson skrifaði um helgina undir eins árs samning við ÍBV. Ragnar er uppalinn á Egilsstöðum og kemur úr Hetti. Hann er fæddur 1994 og er því einnig gjaldgengur með 2. flokk félagsins.
 Ragnar spilaði á Hásteinsvellinum í sumar en það var í bikarleik ÍBV og Hattar sem endaði með 6 - 1 sigri ÍBV.