Fótbolti - Jón Gísli Ström til ÍBV!

31.okt.2012  19:43
Jón Gísli Ström, 19 ára, skrifaði í dag undir tveggja ára samning við ÍBV. Jón Gísli er uppalinn í ÍR en byrjaði að spila með meistaraflokk ÍR aðeins 17 ára gamall. Hann á nú 56 leiki í meistaraflokki.
 Jón Gísli er framherji og hefur leikið 5 leiki með U17 ára landsliðinu og 5 leiki með U19 ára landsliðinu.