Fótbolti - Breyttar tíma og dagsetningar á leikjum ÍBV

25.júl.2012  21:33
Eins og glöggir stuðningsmenn ÍBV hafa tekið eftir þá er búið að fresta leik FH - ÍBV sem átti að fara fram fimtudaginn 26. júlí. Einnig hefur leikur Breiðabliks og ÍBV verið færður frá 18:00 til 17:00 á sunnudaginn næstkomandi.
Leik ÍBV og FH var frestað vegna Evrópukeppni sem FH er í en ný leikdagur hefur enn ekki verið kynntur.
 
Leik ÍBV og Breiðablik var flýtt um eina klukkustund til að gera liði og stuðningsmönnum ÍBV auðveldara fyrir að ferðast heim eftir leik en Herjólfur fer 22:00 frá Landeyjahöfn síðustu ferð.
 
Við hvetjum stuðningsmenn okkar að fjölmenna á Kópavogsvöll á sunnudaginn, 28. júlí, klukkan 17:00 og hvetja ÍBV til sigurs!
 
Áfram ÍBV!