Fótbolti - Bikarleikur á Hásteinsvelli kl. 18:00

25.jún.2012  08:53
Strákarnir fá Hattarmenn frá Egilstöðum í heimsókn á Hásteinsvöll í kvöld (mánudag) kl. 18:00
 
Höttur er sem stendur í 6 sæti í 1. deild  og er með hörkulið. Strákarnir eiga því spennandi verkefni fyrir höndum, sigurliðið kemst svo áfram í 8-liða úrslit.
 
Stuðningsmenn eru hvattir til að mæta á völlinn í kvöld! Vonandi fáum við skemmtilegan leik í góða veðrinu.
 
Miðaverð :
Fullorðnir 1.500 kr.
Börn 15 ára og yngri fá frítt á völlinn.
 
Ath. að stuðningsmannakort og árskort gilda ekki í Borgunarbikarnum.