Fótbolti - Eyjamenn heimsækja Grindvíkinga í kvöld klukkan 19:15

20.jún.2012  08:51
 

Eyjamenn sækja Grindvíkinga heim í kvöld í Pepsídeild karla.  ÍBV hefur gengið allt í haginn í síðustu tveimur leikjum sínum eftir afleita byrjun í Íslandsmótinu en Eyjamenn hafa lagt Stjörnuna og ÍA að velli og markatala liðsins úr síðustu tveimur leikjum í deildinni er 8:1.  Grindvíkingar eiga hins vegar enn eftir að vinna sinn fyrsta leik og mæta væntanlega mjög grimmir til leiks í kvöld.

Grindvíkingar eru  í neðsta sæti deildarinnar með þrjú stig eftir þrjú jafntefli og fjóra tapleiki.  ÍBV hefur hins vegar komist upp töfluna með sigrunum tveimur.  Liðið er nú í 8. sæti með 8 stig eftir tvo sigurleiki, tvö jafntefli og þrjá tapleiki.  Það er því ljóst að ef Eyjamenn ætla sér að komast í toppbaráttuna, þá má ekkert út af bregða.

 

Frétt tekin af www.eyjafrettir.is