Fótbolti - Tryggvi Guðmundsson markakóngur í efstu deild í fótbolta!

30.maí.2012  14:09
 Tryggvi Guðmundsson skráði sig heldur betur á spjöld sögunnar í gær þegar hann skoraði 3 mark Eyjamanna í 4 - 1 sigri á Stjörnunni.
Tryggvi hefur þá skorað 127 mörk í efstu deild karla sem er einu marki meira en ingi Björn Albertsson.
Knattspyrnudeild ÍBV óskar Tryggva sérstaklega til hamingju með þennan áfanga.
 
Sjálfur hefur Tryggvi ekki mikið vilja ræða þetta markamet og segist feginn að nú sé hægt að tala um fótbolta á ný!