Yngri flokkar - Þrír úr ÍBV á úrtaksæfingar í handbolta.

14.maí.2012  10:04
Þeir Dagur Arnarsson, Nökkvi Dan Elliðason og Hákon Daði Styrmisson hafa allir verið valdir til úrtaksæfinga með U-16 ára landsliðið Íslands í handbolta.  Æfingarnar fara fram í Reykjavík seinna í þessum mánuði.
Þjálfari liðsins er Selfyssingurinn Einar Guðmundsson.
 
ÍBV óskar þessum efnilegu drengjum innilega til hamingju með þennan árangur.