Yngri flokkar - 4. flokkur karla sigraði faxaflóamótið

11.maí.2012  09:28
 4. flokkur karla A-lið gerði sér lítið fyrir og sigraði sína deild í faxaflóamótinu sem staðið hefur yfir í vetur, þeir sigruðu alla leikina og enduðu með markatöluna 29-3 við óskum strákunum og þjálfurum til hamingju með árangurinn, en þeir fengu bikar og verðlaunapeninga afhenta á leik ÍBV og Breiðabliks í gærkvöldi. Stelpurnar í A-liðs 3. flokks kvenna gerðu það sama unnu sinn riðil og alla leikina og fá þær sín verðlaun afhent í leikhléi á leik ÍBV og Vals í mfl. kvenna sem fram fer á sunnudaginn.