Fótbolti - Fyrsti heimaleikur sumarsins!

10.maí.2012  08:41
Eyjamenn spila fyrsta heimaleikinn í dag þegar þeir fá Breiðablik í heimsókn. Bæði lið töpuðu í fyrstu umferð og má því búast við hungruðum liðum á vellinum í dag.
 Leikurinn er að venju á Hásteinsvelli og hefst klukkan 18:00. Miðaverð er 1500 krónur fyrir fullorðna en við hvetjum alla stuðningsmenn til að fá sér árskrort sem kostar 12.500 kr. Með því eru stuðningsmenn að spara sér 4000 kr ef mætt er á alla leiki. Einnig bendum við á hjónakort sem eru seld á 20.000 kr.
 
Hlökkum til að sjá sem flesta á vellinum í dag. ÁFRAM ÍBV!