Fótbolti - Gauti Þorvarðar aftur í raðir ÍBV

26.apr.2012  19:37
 Gauti Þorvarðarson skrifaði í dag undir tveggja ára samning við ÍBV. Hann lék síðast með ÍBV árið 2010 en árið 2011 var hann í röðum KFS.
Gauti fer því í hóp með bróðir sínu, Víði sem er nú þegar leikmaður ÍBV. Hann spilar sem hægri kantur, framliggjandi miðjumaður eða framherji. Þetta styrkir því hóp Eyjamanna en nú er ekki nema rúm vika í mót.