Fótbolti - ÍBV 5 - Tindastóll 0

24.mar.2012  15:53
ÍBV var með sannfærandi sigur gegn Tindastól á Skaganum í dag. Nýliðarnir Gunnar Már, Christian Olsen og Víðir Þorvarðar skoruðu þrjú fyrstu mörkin. Hinn ungi og efnilegi Kjartan Guðjónsson kom svo inná og skoraði tvö síðustu mörkin.
 Eyjamenn eru því með 6 stig eftir 5 leiki í riðli tvö í lengjubikarnum. Næsti leikur liðsins er á þriðjudaginn á móti Víkingum frá Reykjavík.