Fótbolti - ÍBV - Tindastóll á Skaganum!

23.mar.2012  15:15
 Meistaraflokkur karla í fótbolta mætir Tindastól á Akranesi laugardaginn 24 mars. Leikurinn hefst
 klukkan 14:00 og er í Akraneshöllinni.
Eitthvað er um meiðsli á lykilleikmönnum ÍBV miðað við undirbúningstímabil. Andri Ólafsson, Tryggvi Guðmundsson, Matt Garner eru meiddir. Ragner Leósson kemur til landsins í byrjun móts en hann er í skóla í Bandaríkjunum. Tony Mawejje er á láni í Suður-Afríku hjá Golden Arrows en hann á að vera kominn 25. apríl til baka.