Fótbolti - Sísí Lára skoraði gegn Englandi.

08.mar.2012  17:36
Íslenska kvennalandsliðið U-19 ára lauk í dag keppni á La Manga mótinu í Portúgal.  Stúlkurnar léku síðasta leikinn gegn Englandi sem komst í 2-0 áður en að Ísland skoraði 3.mörk á síðustu 20 mínútum leiksins.  Svava Tara kom inná á 63.mín og Sísí Lára á 70.mín.  Sísí Lára gerði sér lítið fyrir og skoraði jöfnunarmark Íslands með glæsilegum skalla.  Ísland skoraði svo sigurmarkið rétt fyrir leikslok.