Fótbolti - Mfl. KK fótbolta spilaði tvo leiki um helgina

27.feb.2012  10:11
Fyrri leikurinn var á móti ÍA uppá Skaga. Það var leikur í Lengjubikarnum, en sá leikur endaði 2 - 1 fyrir ÍA. Víðir Þorvarðarson skoraði mark Eyjamanna.
Seinni leikurinn var svo æfingaleikur á móti KV, knattspyrnufélagi Vestubæjar. Þar enduðu leikar 3 - 4 fyrir ÍBV en mörk Eyjamanna skoruðu Aaron Spear, Friðrik Sigurðsson, Björn Axel Guðjónsson og Kjartan Guðjónsson.
 Næsti leikur ÍBV er gegn Stjörnunni í Reykjaneshöllinni næstkomandi sunnudag, 4 mars. klukkan 14:00.