Fótbolti - Fyrsti leikur í Lengjubikarnum hjá Meistaraflokki karla

17.feb.2012  17:07
ÍBV heimsækir ÍR  í Egilshöllina á sunnudaginn næstkomandi. Eyjamenn eru að fá til baka leikmenn bæði frá útlöndum og úr meiðslum. Það má því búast við hörku leik en hann hefst klukkan 14:00. ÍBV er í riðli með 7 öðrum liðum.
 
 Eyjamenn eru í riðli 2 en það er einn leikur búinn í þeim riðli og voru það Víkingar frá Reykjavík sem unnu Keflvíkinga 4 - 2. Fyrir utan þau lið er ÍBV með ÍA, ÍR, KA, Stjörnunni og Tindastól í riðli.
Hægt er að sjá allt um stöðuna í riðlinum og næstu leiki á : http://www.ksi.is/mot/motalisti/urslit-stada/?MotNumer=26335