Fótbolti - Julie Nelson hjálpar Íslenska landsliðinu

15.feb.2012  21:37
Belgía og Norður-Írland skildu jöfn, 2:2, í undankeppni heimsmeistaramóts kvenna í knattspyrnu í Dessel í Belgíu í kvöld en liðin eru með íslenska landsliðinu í riðli. Með sigri hefði belgíska liðið getað jafnað það íslenska að stigum en Julie Nelson, leikmaður ÍBV, sá til þess að svo yrði ekki þegar hún jafnaði leikinn fyrir Norður-Íra sjö mínútum fyrir leikslok.
Það er mbl.is sem greindi frá þessu. Nánar má lesa um leikinn hér.