Fótbolti - Tvö jafntefli hjá meistaraflokki karla um helgina

06.feb.2012  09:51
Tveir leikir voru hjá meistaraflokki karla um helgina og enduðu báðir leikirnir með jafntefli. Fyrri leikurinn var á móti ÍA uppi á Akranesi en síðari leikurinn var í Mosfellsbæ á móti Aftureldingu.
Leikurinn á móti ÍA var heldur betur fjörlegur, en hann endaði 5 - 5. Dani sem var á reynslu yfir helgina, Christian Olsen, skoraði 2 mörk og Tryggvi Guðmundsson skoraði hin 3. Síðari leikurinn var svo á móti Aftureldingu en Christian Olsen skoraði aftur tvö mörk og nýliði í 2. flokki ÍBV, Björn Axel, frá Gróttu skoraði 3ja mark Eyjamanna. 
 
Næsti leikur ÍBV er á móti ÍR sunnudaginn 19. febrúar í Egilshöll klukkan 14:00. Það verður fyrsti leikur liðsins í Lengjubikarnum.