Fótbolti - Strákarnir spila um Íslandsmeistaratitilinn á morgun

07.jan.2012  18:22
 Strákarnir í meistaraflokki gerðu sér lítið fyrir og unnu sjálfa Íslandsmeistarana í Fjölni 7-3 og tryggðu sér um leið rétt til að spila úrslitaleik Íslandsmótsins í innanhúsfótbolta á morgun (sunnudag). 
 
Liðið hefur ekki enn tapað leik í mótinu og etja þeir kappi við Víking Ó. á morgun kl. 14:00 í laugardalshöllinni. Víkingur vann í dag nauman sigur á Leikni R. 4-3. 
 
Það verður því spennandi að sjá hvort að ÍBV eignist Íslandsmeistara á morgun í Laugardalshöll!!