Fótbolti - Nokkrir úr IBV á landsliðsæfingar.

03.jan.2012  08:52
Þórarinn Ingi Valdimarsson hefur verið valinn til æfinga með A-landsliði Íslands nú í janúar.  Æfingarnar eru liður í undirbúningi fyrir tvo æfingaleiki sem liðið leikur gegn Japan og Svartfjallalandi.  Æfingarnar fara fram í Reykjavík dagana 12-14.janúar.  Þjálfarar liðsins eru Lars Lagerbeck og eyjamaðurinn Heimir Hallgrímsson.
Guðmundur Þórarinsson og Brynjar Gauti voru báðir valdir til æfinga með landsliði Íslands U-21.  Æfingarnar fara fram 14.og 15.janúar á Reykjavíkursvæðinu.  Þjálfarar liðsins eru Eyjólfur Sverrisson og eyjamaðurinn Tómas Ingi Tómasson.
Sigurður Grétar Benónýsson og Kristínn Skæringur Sigurjónsson voru báðir valdir til æfinga með landsliði Íslands U-17  Æfingarnar fara fram um næstu helgi á Reykjavíkursvæðinu.  Þjálfarar liðsins eru Gunnar Guðmundsson og Freyr Sverrisson.
 
IBV óskar þessum leikmönnum innilega til hamingju með þennan árangur.