Fótbolti - Meistaraflokkur karla í úrslitakeppni í Futsal

02.jan.2012  14:18
 Strákarnir hafa tryggt sér sæti í úrslitakeppni í Futsal. Það gerðu þeir með því að vinna sinn riðil. Úrslitakeppnin fer fram næstu helgi og verður spiluð næstu helgi. Hægt er að sjá leiktíma strákana með því að smella á meira.
Futsal mótið er haldið í Laugardalshöll. Fyrsti leikur liðsins er laugardaginn 7. janúar. Leikurinn hefst klukkan 15:30 og er á móti Fjölni eða Fylki. Sigurvegari úr þeirri viðureign fer svo í úrslitin á sunnudeginum 8. janúar og hefst keppni klukkan 14:00.