Fótbolti - Spennan magnast í getraununum

09.des.2011  15:37

Boðið uppá súpu og brauð á laugardaginn

Þá fer að draga til tíðinda í haust-hópaleik getraunadeildar ÍBV. Næst síðasta umferðin verður leikin um helgina og þarf eitthvað mikið að gerast ef að VB-44 mun misstíga sig á lokametrunum. Opið er frá klukkan 12-14 í Týsheimilinu. Þá má geta þess að boðið verður uppá ljúffenga súpu í tilefni af því að hlutabréfakerfið kemur til með að ganga upp um helgina. 
Örn og Hannes taka við skráningum ef að þú vilt kaupa hlut. Númerið á getraunavaktinni er 481-2861 og hægt er að senda tölvupóst á 1x2@ibv.is.