Fótbolti - Sigur á móti Fjölni í æfingaleik. TG9 heitur!

04.des.2011  13:10
 Strákarnir léku æfingaleik í borginni í gær (laugardag) og héldu upp á skóflustunguna að nýrri stúku með góðum sigri á Fjölni. 
 
Leikurinn fór 2-0 fyrir ÍBV og skoraði Tryggvi Guðmundsson annað markanna og fiskaði vítaspyrnu sem Eyþór Helgi skoraði úr. 
 
Athygli vakti að Jónas Bergsteinsson og Hilmar Ragnarsson léku í vörn ÍBV í þessum leik og stóðu sig mjög vel. Jónas kom nýlega frá Njarðvík og mun spila með 2. flokki ÍBV næsta sumar. Hilmar kom frá Fjölni fyrir síðasta tímabil og lék með 2. flokki í sumar. Báðir æfa þeir með meistaraflokki í Reyjavík um þessar mundir.