Fótbolti - Aaron Spear skrifar undir tveggja ára samning.

01.des.2011  10:50
 Aaron Spear hefur skrifað undir tveggja ára samning við ÍBV eða út tímabilið 2013.
 
Aaron kom frá Newcastle United í lok júlí og lék 12 leiki með ÍBV á síðasta tímabili. Hann skoraði 5 mörk í síðustu 5 leikjunum fyrir ÍBV og var að finna sig vel í hvíta búningnum. 
 
Aaron fór til Stuttgart á reynslu eftir tímabil en hefur nú ákveðið að skrifa undir hjá ÍBV. Aaron hlakkar til að taka þátt í baráttunni með ÍBV og leika með þeim í Evrópukeppninni á næsta tímabili. 
 
Það verður gaman að fylgjast með Aaron á Hásteinsvelli næsta sumar.