Handbolti - 4.flokkur kvenna B-lið vann leiki sína í eyjum

20.mar.2006  15:16

B-lið 4.flokks kvenna í handbolta spilaði 3 leiki hér í eyjum um helgina. Unnu þær alla leiki sína 3 mjög sannfærandi og með miklum mun. ÍBV vann Val 20-11, þá sigruðu þær KR 17-9 og í þriðja leiknum steinlágu Gróttustúlkur og endaði sá leikur 21-7 fyrir ÍBV. Glæsilegur árangur hjá þessum stelpum.

Markaskorarar voru eftirfarandi:

Aníta Elíasdóttir var með 15 mörk, Kristrún Hlynsdóttir 13 mörk, Arna Björk Guðjónsdóttir og Bylgja Haraldsdóttir voru með 11 mörk, Saga Huld Helgadóttir 5 mörk og Margrét Jónsdóttir var með 3 mörk.

Einnig varði Dröfn Haraldsdóttir mjög vel í markinu.