Fótbolti - Atli með 2

12.mar.2006  20:13

2-1 sigur á Víkingi frá Ólafsvík í Fífunni í dag.

Atli Jóh. virðist vera búin að finna skotskóna sína því hann gerði bæði mörk liðsins í dag gegn sprækum Víkingum frá Ólafsvík - oft kallaðir Ólsarar. Ólsarar höfðu komist yfir með marki snemma leiks en Atli skoraði síðan beint úr aukasðyrnu fyrir hálfleik og þar við sat þegar menn fóru að hlusta á ræður þjálfaranna í hléinu. Atli bætti síðan við öðru mark þegar hann náði boltanum er hann hrökk af markverði Ólsara eftir gott skot frá Antoni Bjarna.
Liðið var þannig skipað.:
Hrafn
Adolf Davíð Páll (fyrirliði) Anton
Bjarni G Chris
Atli
Arilíus Ryan Martin
Sævar Eyjólfs

Sindri Viðars kom inn fyrir Dolla á 55. mín.
Egill kom inn fyrir Alli
Gaui - kom ekki inn á
Einar kristinn - kom ekki inn á
Hafþór - kom ekki inn á

Það liggur fyrir að ÍBV mun ekki semja við Ryan Martin og heldur hann til baka til USA í vikunni við óskum honum alls hins besta í framtíðinni.