Handbolti - Bikarleikur hjá stúlkunum í dag

17.jan.2006  08:44

Leika gegn HK kl. 18:00 í Kópavogi

Stelpurnar okkar leika gegn HK í dag í átta liða úrslitum SS-Bikarsins og fer leikurinn fram í Kópavogi og hefst kl. 18:00.

Þetta verður gríðarlega erfiður leikur og því full ástæða fyrir Eyjamenn á höfuðborgarsvæðinu að leggja leið sína í Kópavoginn og styðja við bakið á stelpunum.

Okkar stúlkur verða að koma grimmar til leiks frá fyrstu mínútu og berjast mikið fyrir sigri í þessum leik. Við verðum að vona að þær komi vel einbeittar til leiks og innbyrði sigur í þessum leik.