Handbolti - ÍBV-Fram, laugardag kl. 14:00

13.jan.2006  08:25

Mætum og styðjum við bakið á stelpunum.

Stelpurnar okkar leika gegn Fram á laugardag kl. 14:00 (ath. breyttur leiktími). Þetta verður erfiður leikur fyrir stúlkurnar þar sem Fram er með mjög svo efnilegt lið og hefur verið að styrkja sig með tveim erlendum leikmönnum á síðustu vikum á sama tíma og okkar lið hefur verið að veikjast.

Það er nauðsynlegt að okkar stúlkur komi að krafti í þennan leik og spili skynsaman og góðan leik frá upphafi til enda. Við þurfum virkilega á því að halda ef við ætlum okkur eitthvað í vetur.

Það er vonandi að við Eyjamenn látum sjá okkur á leiknum og leggjum stúlkunum lið í þessum leik.