Fótbolti - Fundur um knattspyrnuhús

09.jan.2006  08:35
ÍBV-íþróttafélag boðar til almenns fundar í kvöld, mánudag 9. janúar, um knattspyrnuhús í Vestmannaeyjum. Fundurinn verður haldinn í Höllinni og hefst klukkan 20 og að sjálfsögðu eru allir velkomnir.
Farið verður yfir málið frá sjónarhóli félagsins og því sem það telur að ávinnist með tilkomu slíks húss. Láttu sjá þig