Handbolti - Nikolett Varga heldur heim á leið

02.jan.2006  17:27

Ungverska stúlkan Nikolett Varga hefur ákveðið að halda heim á leið persónulegum ástæðum, þar sem hún er kona eigi einsömul. Hún kom til okkar seint í vetur og var aðeins byrjuð að stimpla sig inn í liðið og við höfðum vonað að hún ætti eftir að hjálpa okkur töluvert á nýju ári. Hún fór heim í jólafrí í desember og kom til baka í fínu formi á milli jóla og nýjar. Hún virtist ælta að gefa okkur þá von er við bárum til hennar um að hún mundi hjálpa okkur í vetur. En við vitum að náttúran gerir oft ekki boð á undan sér og því mun hún eigi leika með okkur meir. Við óskum henni og hennar fjölskyldu alls hins best og þökkum henni fyrir samstarfið.

Við verðum að vona að náttúran taki ekki öll völd í okkar liði og að það fækki enn frekar í okkar þunna leikmannahóp. En við vonum að þjálfarinn útskýri það vel fyrir stelpunum og fræði þær um nauðsyn þess að stunda öruggt kynlíf á meðan keppnistímabili stendur.